Skip to main content

Sérhæfum okkur í atvinnutækjum og bifreiðum!

Bílaforritun er með lausnir sem bæta skilvirkni í flestum nútíma atvinnutækjum og minnka hættuna á vinnustöðvun!

AFHVERJU BÍLAFORRITUN?

Tuningservice.is er stoltur samstarfsaðili Tuning Service AS sem eru sérfræðingar í hágæða uppfærslum á hugbúnaði fyrir vélartölvur í faratæki.

Sparnaðar uppfærsla

Ecu tune sparnaðar uppfærsla er eingöngu í boði fyrir díselbíla og hefur svo sannarlega slegið í gegn og unnið til margra verðlauna.

Aflauknings uppfærsla

Aflauknings uppfærsla er í boði bæði fyrir bensín og díselbifreiðar. Uppfærslan gefur meira afl og meira tog samanborið við sparnaðarforritun.

Enginn falinn kostnaður

Við gerum þér tilboð og stöndum við það. Ef það kæmi fyrir að útlit væri fyrir aukinn kostnað ertu látinn vita fyrirfram, ekki eftir á.

VISSIR ÞÚ!!!

Ein af ástæðum þess að velja Bílaforritun er að öll endurforritun sem við bjóðum upp á hefur verið hestaflamæld í mælibekk (Rolling Road Dyno) og sannreynd á vegum úti í samskonar bifreið hjá TuningService AS.

Sérsniðinn hugbúnaður

Hvert farartæki fær sérsniðinn hugbúnað að þörfum hvers og eins. Fólk er mismunandi eins og bílarnir, Þannig er hugbúnaðurinn frá okkur líka. Hverjar sem óskirnar eru þá lögum við okkur að þínum þörfum.

Mikil reynsla

Sá fjöldi faratækja sem Bílaforritun hefur uppfært er yfir tíu þúsund. Starfsmenn Bílaforritun eru með ólíka reynslu sem gera teymið enn sterkara.

Starfsmenn

Dagur Sveinsson

Eigandi

Dagur er með víðtæka reynslu innan bifreiða- og atvinnutækjageirans.
Hann útskrifaðist úr bifvélavirkjun 2007.
Starfaði og rak verkstæði í mörg ár í kringum powersport iðnaðinn þ.s áhuginn á forritunni og hugmynd hans að stofnun Bílaforritun á Íslandi varð að veruleika árið 2013.
Hann tók sér smá hlé á Íslandsferlinum, þegar hann hélt til Noregs, þ.s hann hélt áfram að forrita og bætti m.a við sig sérhæfingu í ræsivarnarkerfum, automotive locksmith ásamt fleiru.
Þegar hann flutti aftur á klakann, keypti hann Bílaforritun North-East sem hann hefur rekið í mörg ár. Hans markmið er að veita hverjum og einum viðskiptavini persónulega þjónustu með góðri eftirfylgni.

Ekki hika við að hafa samband

Það er aldrei að vita hvað endurforritun getur gert fyrir þig, þannig að ekki hika og sendu okkur línu!

    This site is protected by reCAPTCHA and the Google Privacy Policy and Terms of Service apply.

    Óseyri 2 | 600 Akureyri